Alefli Notendafélag Gegnis

Aðalfundur 2009

Aðalfundur fulltrúaráðs Aleflis 2009
Haldinn í fundarsal Landsbókasafns Háskólabókasafns 8. maí 2009 kl. 10-12

Andrea Jóhannsdóttir setti fundinn og skipaði Þórhildi Sigurðardóttur fundarstjóra.

Mættir: Andrea Jóhannsdóttir, Rósa S. Jónsdóttir, Ásdís H. Hafstað, Kolbrún Erla Pétursdóttir, Margrét Björnsdóttir, Helga Kristín Gunnarsdóttir, Þórhildur S. Sigurðardóttir, Sigrún Ingimarsdóttir, Margrét R. Gísladóttir, Nanna Þóra Áskelsdóttir, Lísa Z. Valdimarsdóttir, Sunna Njálsdóttir. Þ.e. fulltrúar fyrir allar stjórnunareiningar nema ICE57 og ICE59.

Dagskrá:

1. Skýrsla stjórnar.
Andrea Jóhannsdóttir, formaður flutti skýrsluna og gerði grein fyrir starfinu frá síðasta aðalfundi (fylgiskjal á vef Aleflis).

2. Skýrsla gjaldkera.
Rósa Jónsdóttir lagði fram rekstrarreikning Aleflis.
(fylgiskjal á vef Aleflis).

3. Lagabreytingar.
Lagabreytingar voru engar.

4. Kosning stjórnar.
Andrea Jóhannsdóttir (ICE51) og Anna Margrét Birgisdóttir (AUS50) gengu úr stjórn. Tillögur höfðu komið um að Lísa Z. Valdimarsdóttir (ICE51) og Margrét Gísladóttir (SUD50) kæmu í þeirra stað og var það samþykkt. Rósa S. Jónsdóttir (ICE56) og Ásdís H. Hafstað (ICE53) verða áfram í stjórn næsta ár.

5. Önnur mál:
a. Tilnefning í skráningarráð: Þóra Sigurbjörnsdóttir, Anna Sveinsdóttir og Gunnhildur Loftsdóttir. Tilnefningin var samþykkt.

b. Skýrslur stjórnunareininga:
Gerð var grein fyrir skýrslum eftirtalinna stjórnunareininga en skýrslurnar í heild sinni verða birtar á vef Aleflis:
ICE53 Almennings- og framhaldsskólabókasöfn á höfuðborgarsvæðinu, Ásdís H. Hafstað
AUS50 Austurland, Kolbrún Erla Pétursdóttir
ICE55 Grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu,Margrét Björnsdóttir
ICE51 Háskólabókasöfn, Andrea Jóhannsdóttir
ICE50 Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Landspítali, Helga Kristín Gunnarsdóttir
ICE52 Bókasafn Menntavísindasviðs, Þórhildur S. Sigurðardóttir
NOR50 Norðurland, Sigrún Ingimarsdóttir
ICE56 Sérfræðisöfn, Rósa S. Jónsdóttir
SUD50 Suðurland og Reykjanes, Margrét Gísladóttir
VES50 Vesturland og Vestfirðir, Nanna Þóra Áskelsdóttir
Skýrslur bárust ekki frá ICE57 Stjórnsýslusöfn og ICE59 Fyrirtæki, stofnanir og félög.
Nokkrar umræður urðu í kjölfar skýrslana m.a um skráningu gjafa, fyrirkomulagi á rukki sagt var frá kennsluforritinu Camtasia og fram kom ósk um barnvæna útgáfu á Gegnir.is.
Formaður þakkaði stjórnarmönnum samstarfið á liðnum árum, bauð nýja stjórnarmenn velkomna og þakkaði fundarmönnum góða fundarsetu.

Fundi slitið kl. 12.00

Ásdís H. Hafstað ritaði fundargerð

Comments (0) Trackbacks (0)

No comments yet.


Leave a comment

(required)

Trackbacks are disabled.