Alefli Notendafélag Gegnis

10. samráðsfundur – 1. desember 2009

Samráðsfundur Aleflis, Landskerfis bókasafna og Skráningarráðs Gegnis
Haldinn í Borgartún 37, 1. desember, kl. 13.

Mættir :Sveinbjörg Sveinsdóttir, Sigrún Hauksdóttir, Gunnhildur Loftsdóttir, Hildur Gunnlaugsdóttir, Sigrún Marelsdóttir, Þóra Sigurbjörnsdóttir, Ásdís H. Hafstað, Lísa Z. Valdimarsdóttir, Margrét Gísladóttir og Rósa S. Jónsdóttir.

1. Notendaráðstefna IGELU
Sigrún og Sveinbjörg sögðu frá Igelu notendaráðtefnunni sem haldin var í Helsinki 7.-9. September 2009.
Þar voru meðal annars kynntar forsendur fyrir fyrirhuguðu bakvinnslukerfi URM (Unified Resource Management System) og betrumbætur í Aleph,Voyager, SFX, Metalib, Primo og fleiri kerfum (sjá http://igelu.org/conference-2009-program-and-presentations). “Unified Resource Management System” vísar til þess að URM er hugsað fyrir fjölbreytilegan safnkost bókasafna nútímans s.s. prentað, rafrænt og stafrænt efni.
Bókasafnakerfi framtíðarinnar hjá Ex Libris verður bakvinnslukerfið URM ætlað starfsmönnum safna, og notendaviðmótið Primo (research and discovery) ætlað endanotendum bókasafna. URM er enn í þróun hjá Ex Libris. Ýmsir rýnihópar eru starfandi hjá Ex Libris vegna þróunar URM og er Sveinbjörg í rýnihóp um samlög (consortium).

2. Primo, Samþætt leitargátt fyrir Ísland
Sveinbjörg sagði frá Primo sem er hugbúnaður sem notaður verður til að koma upp Samþættri leitargátt fyrir Ísland, og fyrirhuguðum kaupum á Primo. Með fyrsta áfanga að Samþættri leitargátt fyrir Ísland verður hægt að leita samtímis í gengum eina vefgátt, Primo, í Gegni og í fyrirliggjandi stafrænu íslensku efni.
Stjórn Landskerfisins hefur tekið ákvörðun um kaup á Primo en ekki er búið að skrifa undir samning, verður það gert á næstu dögum. Fjármögnun kaupanna kemur úr afskriftasjóði félagsins og tækjabúnaðurinn verður leigður. Starfsmönnum Landskerfis verður fjölgað um 0.75 stöðugildi frá og með hausti 2010. Gjaldskrá Landskerfis helst óbreytt og þjónusta verður aukin.
Gert er ráð fyrir stofnkostnaði, ca 30 milljónir og að viðbótar rekstarkostnaður félagsins verði 8 milljónir á ári.
Innleiðing hefst 2010 og gert er ráð fyrir að kerfið líti dagsins ljós í beta útgáfu í byrjun árs 2011.
Gagnasöfn í landsaðgangi og séráskriftir bókasafna verða ekki með í fyrsta áfanga verkefnisins..

3. Athugasemdir frá notendum
Stjórn Aleflis sendi út á haustmánuðum beiðni til stjórnunareininganna að þær sendu athugasemdir og ábendingar um það sem betur má fara í hinum mismunandi starfsþáttum Alephs og á Gegni.is Ýmsar ábendingar komu bæði ítrekun á fyrri ábendingum og einnig ný atriði.
Rósa fór yfir lista með þessum atriðum og svöruðu fulltrúar Landskerfis og skráningarráðs fyrir þau atriði sem viðkom þeirra sérsviði. Listinn með athugasemdum og svörum Landskerfis og skráningarráðs mun verða birtur ásamt fundargerð á vef Aleflis síðar.

4. Fréttir af starfsemi Landskerfis bókasafna

Indexering - Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning vegna indexeringar á t.d. rafrænu efni og ritröðum. Áætlað er að indexa fljótlega en eftir það verður rafrænt efni bæði leitarhæft og sýnilegt.

Lagfæring á bókfræðigrunni – Sigrún sagði frá því að til stendur að laga vélrænt bókfræðigrunninn. Verður það mikill vinnusparnaður og gæði gagnagrunnsins aukast.
Helstu atriðin sem lagfærð verða: lagfæringar og viðbætur í sviðum 007 og 008, óþarfa sviðum verður eytt, eyðing DOB hala og samræming á forsögnum tegundar efnis.

Nýr millisafnalánaþáttur – Sigrún greindi frá því að vinna við að taka í notkun nýja útgáfu (18. Útgáfu) að millisafnalánaþættinum hefjist í desember 2009. Þau söfn sem notað hafa millisafnalánaþáttin koma að vinnunni. Þessi útgáfa er mun betri en fyrri útgáfur t.d meiri sveigjanleiki, öll söfn geta verið millisafnalánasöfn og auðvelt er að skilgreina eftir aðstæðum á hverjum stað. Áætlað er að það taki fjóra mánuði að innleiða þennan þátt. Mikilvægt að ljúka því áður en 20. Útgáfa Aleph verður sett upp.

Innleiðing SFX Classic krækjukerfisins – Sveinbjörg
Öflugra krækjukerfi fyrir Landsaðgang og háskólasamfélagið á Íslandi hefur nú verið tekið í gagnið, en það nefnist SFX Classic og tók við af SFX Express. Innleiðingin er samstarfsverkefni Landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og Landskerfis bókasafna. Enn eru nokkrir hnökrar á kerfinu þar sem nokkur gagnasöfn í landsaðgangi hafa ekki virkjað sfx-ið hjá sér. Stefnt er að því að kerfið virki eins og það á að gera fyrir lok árs.

Aðgerðir til að bæta hraða Gegnis – Sveinbjörg
Mikil vinna hefur verið lögð í að finna lausn á orsökum hægagangs í kerfinu. Tillaga að lausn vegna hægagangs í útlánaþætti er fundin og er hún í prófun. Ex Libris er ekki búið að ákveða hvort hægt verður að virkja lagfæringuna í þjónustupakka í 18. útgáfunni eða hvort bíða verður eftir 20. útgáfunni, sem væri verri kostur fyrir notendur sem bíða lausnar á þessum vanda. Vonast er til þess að þessi mál skýrist á næstu vikum.

Fleira ekki rætt. Fundi slitið kl. 16.30

Comments (0) Trackbacks (0)

No comments yet.


Leave a comment

(required)

No trackbacks yet.