49. fundur
Haldinn á Bókasafni Grindavíkur miðvikudaginn 10. September 2009 kl 14:30 -16.00
Mættar: Ásdís H. Hafstað, Margrét Gísladóttir, Lísa Z. Valdimarsdóttir og Rósa Jónsdóttir
Ásdís ritaði fundargerð.
Rósa er búin að senda fyrirspurn til Sveinbjargar hjá Landskerfið að hún stingi upp á fundartíma fyrir árlegan samráðsfund starfsmanna Landskerfis, skráningarráðs og stjórnar Aleflis.
Stjórnin setur saman form eða skema til þess að færa inn ábendingar og athugasemdir. Einnig fer stjórnin yfir skýrslur stjórnunareininganna frá aðalfundi og safnar saman þeim ábendingum sem þar koma fram.
Stefnt er að því að ljúka þessari undirbúningsvinnu fyrir 1. Október.
Þegar dagsetning samráðsfundar er komin sendir stjórnin tilmæli til fulltrúa stjórnunareininga að þau safni saman ábendingum frá sínum hópi í meðfylgjandi form. Stjórnin mun svo vinna úr innsendum gögnum og koma á framfæri á samráðsfundinum.
Mikilvægt að senda fréttir og fundargerðir bæði á póstlista Vöndu og á heimasíðu Aleflis.
Stefnt er að því að (sam)vinna stjórnar verði mestmegnis yfir netið á næstunni en næsti formlegi fundur verði haldinn þegar nær dregur samráðsfundinum.