Eldri lög
Lög Aleflis
I. Nafn og hlutverk
1. gr.
Félagið heitir Alefli og er samstarfsvettvangur notenda Aleph-bókasafnakerfisins á
Íslandi. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr.
Hlutverk félagsins er:
a) að miðla reynslu milli safna og vera málsvari notenda kerfisins,
b) að samhæfa óskir og kröfur á hendur Landskerfi bókasafna hf. og framleiðendum
Aleph-kerfisins og forgangsraða þeim,
c) að fylgjast með og hafa áhrif á þróun kerfisins,
d) að vera tengiliður við erlend notendafélög Aleph, einkum önnur norræn félög.
II. Aðild
3. gr.
Öll söfn sem nota Aleph-kerfið á Íslandi eru aðilar að félaginu.
III. Stjórn
4. gr.
Fulltrúaráð Aleflis er skipað einum fulltrúa frá hverri stjórnunareiningu, eins og þær eru myndaðar af Landskerfi bókasafna hf. Stjórnunareiningarnar skulu tilnefna fulltrúa sinn og einn til vara einum mánuði fyrir fulltrúaráðsfund hvert ár. Hver eining hefur eitt atkvæði óháð umfangi eða stærð.
Fulltrúaráð skal halda fund minnst árlega. Fulltrúaráð kýs þriggja manna stjórn og einn til vara úr sínum hópi. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn, tveir aðalmenn annað árið og einn aðalmaður og einn varamaður hitt árið. Aðalmenn og varamenn mega sitja í tvö kjörtímabil samfellt. Leitast skal við að stjórnina skipi fulltrúar ólíkra safnategunda. Stjórnin skiptir með sér verkum.
Stjórnin getur kallað áheyrnarfulltrúa frá Landskerfi bókasafna hf. á fundi ef hún telur þess þörf.
5. gr.
Verksvið stjórnar er:
a) að skipa starfshópa um ýmis verkefni ef þurfa þykir og að tilnefna fulltrúa í fagráð, nefndir og hópa,
b) að gera tillögur um fræðslu fyrir notendur í samvinnu við Landskerfi bókasafna hf.,
c) að skipuleggja árlegan fund fulltrúaráðs sem einnig er aðalfundur félagsins; hann skal haldinn fyrir 15. maí ár hvert,
d) að fara með málefni félagsins milli aðalfunda í samræmi við lög og samþykktir þess.
IV. Almennar notendaráðstefnur
6. gr.
Notendaráðstefnur skal halda í tengslum við ársfundi fulltrúaráðs.
V. Lagabreytingar og félagsslit
7. gr.
Breytingartillögur á lögum félagsins má aðeins bera fram á aðalfundi og skulu þær hafa borist stjórn fyrir 1. apríl.
8. gr.
Félaginu má aðeins slíta á aðalfundi ef 2/3 fundarmanna samþykkja. Eignir félagsins skulu renna til bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands.